PRIME FITNESS

Prime Fitness sérhæfir sig í persónumiðaðri fjarþjálfun fyrir einstaklinga, óháð aldri og getustigi.
Einu kröfur Prime Fitness er að þú leggir þig 100% fram!

Hvað er Prime Fitness?

Prime Fitness býður upp á sérsniðin æfingaprógröm, markmiðasetningu og stöðuga eftirfylgni – allt í gegnum snjalltækið þitt. Hvort sem þú ert á Akranesi, úti á landi eða erlendis, getur þú fengið faglega leiðsögn og stuðning frá reyndum þjálfara. Markmið mitt er að hjálpa þér að byggja upp styrk, sjálfstraust og heilbrigðan lífsstíl – hvar sem þú ert. 

Prime Fitness – þjálfun á þínum forsendum.

Ísak Smári

Eigandi og þjálfari Prime Fitness!

Ég byrjaði að stunda líkamsrækt 17 ára gamall. Ég hafði ekki hundsvit á næringu, æfingum eða neinu sem viðkom því að ná árangri. Þannig eina sem ég vissi var að ég elskaði að lyfta.

Ég eyddi mörgum árum í ræktinni með mjög takmörkuðum árangri.
Einn góðan veðurdag byrjaði ég ferlið að læra á næringu. Að læra hvernig maður á að borða og æfa til að byggja vöðva og skera fitu.
Í hverri viku varð ég betri og betri og er enn í dag að bæta mig stanslaust. 

Nú langar mig að hjálpa öðrum að læra. Mig langar að leiðbeina öðru fólki að ná sínum markmiðum í ræktinni. 
Mig langar að sýna öllum hvað það að vinna markvisst að einhverju er gífurlega uppbyggjandi bæði líkamlega og andlega!
Það að vera með stór markmið og negla þau er ótrúlega góð tilfinning og ég vill hjálpa öðrum að upplifa þá tilfinningu.

Því þegar þú finnur bragðið af þeirri tilfinningu þá fyrst byrjarðu að komast á næsta level!
Leit