Af Hverju Prime Fitness
Ég þekki ferlið
Ég hef gengið í gegnum ferlið oft. Að byggja vöðva, skera fitu, aftur og aftur og aftur til að komast lengra og lengra.
Ég veit nákvæmlega hvað þarf að gera til að komast á þann stað sem þú vilt vera. Ef þig langar að verða skorinn eins og fitness keppandi, þá skal ég koma þér þangað!
Líf mitt snýst um Fitness
Allt mitt líf snýst á einn veg eða annan um bodybuilding.
Þessi lífsstíll á það til að heltaka líf manns og ég lít á það sem góðan hlut!
Það er fátt sem gerir þig eins öflugan út í lífið eins og bodybuilding.
Það byggir aga.
Það byggir sjálfstraust.
Það ýtir þér á staði sem þú hélst þú myndir aldrei komast á.
Það er það besta sem hefur komið fyrir líf mitt og mig langar að sýna þér hversu góð áhrif það hefur - á öll svið lífsins!
Ég vill að þú náir árangri
Ég veit hvað það að ná árangri er góð tilfinning.
Ég veit hvað það er gott að fara út fyrir þægindarammann og ná lengra en allir í kringum mann halda að maður geti.
Ég veit hvað þessi lífsstíll býður upp á og ég vill hjálpa öðrum að sjá það ljós.
Ég lifi fyrir þinn árangur!


Hvað eiga allir þessir aðilar sameiginlegt?
Allir einstaklingarnir á myndunum fyrir ofan eiga það sameiginlegt að þeir vildu ná árangri. Þeir vildu breytingu í líf sitt og voru tilbúnir að gera það sem þurfti til að ná þeim árangri. Það er ekki auðvelt að ná árangri, það krefst vinnu, aga og metnaðar.
Ef þú heldur að það sért ekki þú skaltu hugsa aftur, því þetta eru allt lærðir eiginleikar - ekki meðfæddir.
Ef þú vilt eitthvað nógu mikið er ekkert sem stendur í vegi þínum nema þú sjálfur.
